Hvolpa-, grunn- og hlýðninámskeið í Hafnarfirði. Valgerður Júlíusdóttir (Vala) hefur kennt á hundanámskeiðum í yfir þrjátíu ár. Allir hundar velkomnir — og öll fjölskyldan með.

✔ 9 skipti á námskeiði  ·  ✔ Afsláttur af hundaleyfisgjöldum  ·  ✔ Mörg stéttarfélög endurgreiða  ·  ✔ Menntaður hundaþjálfari HRFÍ

Næstu námskeið

Öll námskeið eru 9 skipti og kosta kr. 37.000. Kennt er 2x í viku (mánudaga og miðvikudaga) kl. 18:00 í bílageymslunni undir Firði í Hafnarfirði. Af og til eru einnig námskeið kl. 19.

Hvolpa- og grunnnámskeið

Byrjendanámskeið fyrir hvolpa frá 3ja mánaða aldri og hunda frá 7 mánaða aldri. Farið er í taumþjálfun, innkall, sitja og liggja, og unnið með slökun, augnsamband og samstarfsvilja hundsins. Eitt skipti er kennt úti í umhverfisþjálfun. Bólusetning gegn smáveirusótt (parvo) er skilyrði.

HefstStaða
Miðvikudagur 21. október Fullbókað
Mánudagur 23. nóvember Skráning stendur yfir
Mánudagur 11. janúar 2027Skráning stendur yfir
Miðvikudagur 10. febrúar 2027Skráning stendur yfir

Hlýðninámskeið (framhald)

Fyrir hunda sem lokið hafa hvolpa- eða grunnnámskeiði. Æft er hælganga í taumi, sitja og bíða, standa, hindrun, innkall og áreitisæfingar, með áherslu á vinnugleði og samstarfsvilja. Gerðar eru mun meiri kröfur en á grunnnámskeiði og dagleg æfing er nauðsynleg.

HefstStaða
Í lok febrúar 2027Skráning opin

Hlýðni II og einstaklingskennsla eru einnig í boði. Sjá öll námskeið →

Um Völu hundaþjálfara

Valgerður Júlíusdóttir (Vala) er menntaður hundaþjálfari frá Hundaræktarfélagi Íslands og hefur kennt á hundanámskeiðum í þrjátíu ár. Hún ræktar undir FCI-ræktunarnafninu GLITNIR og hefur átt hunda í yfir 30 ár. Meira um Völu og Hundaskólann →